23.11.2011 | 08:51
Sami grátkórinn á moggablogginu
Hér er sama liðið að býsnast yfir einhverju smá drasli í kringum tjöld á austurvelli á meðan tjaldbúarnir eru að mótmæla ruslaragangi inni í Alþingisbyggingunni. Ekki leggur það neitt til lausnar þeirra mála, hvorki táknrænt né beint. Enda er þetta lið - Gunnar, Axel, Jón Valur og co. svosem ekki að vinna að betra Íslandi þannig að það er svosem ekki við því að búast.
Þessar tjaldbúðir eru algert aukaatriði og mér heyrist og sýnist Alþingi vera fullfært um að hundsa þetta fólk hvort sem er, rétt eins og aðra mótmælendur síðustu tvö ár.
|
Slæm umgengni á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.10.2011 | 12:16
Viðbrögð mín við stefnuræðu forsætisráðherra og svörum alþingismanna.
Er einhver til í að segja þessum alþingismönnum sem sjá ekkert nema sjálf sig og hvort annað sem er þarna inni á þessari vanheilu stofnun eftirfarandi:
1. Fólk er brjálað yfir því að þið svíkið heimilin í hendur bönkunum á meðan það eru einmitt þeir sem bera stærstu beinu sökina á því hvernig málum er háttað.
2. Við gerum okkur FULLA GREIN fyrir að þið þingmenn eruð svona ógeðslega sjálfhverfir til þess að komast hjá því að ræða um verðtrygginguna með lausn á henni í huga. Á meðan þið getið talað við ykkur sjálf og kennt hvort öðru um, þá þurfið þið ekki að grípa til aðgerða.
3. MÓTMÆLIN SNÚAST EKKI UM YKKUR heldur ÞAÐ SEM ÞIÐ GERIÐ EKKI!
4. Þið eruð bara fólk í vinnu og almenn upplifun er að þið séuð vanhæf upp til hópa og bugtið og beygið ykkur eftir skipunum úr fjármálakerfinu. Enda eru BANKARNIR þeir sem græða, og það segir hvaðan skipanirnar koma.
5. Mótmælin snúast um heimili almennings. Ef þið munduð stöðva eignabrunann mundi ykkur vera fagnað á leið á þing í stað þess að vera formælt.
6. Við erum LÖNGU hætt að mótmæla Sjálfstæðisflokki og Framsókn. Flestir vita að þeir eru út úr myndinni. Þeir sem stjórna bera alla ábyrgð á aðgerðaleysinu, rétt eins og fyrir hrun.
7. AÐAL kosningaloforðið var að bjarga heimilunum, og hvað gerið þið? Ofurselja þá sem bankarnir prönguðu ólöglegum gengislánum inn á sömu örlögum og þeirra sem sitja í verðbólgusúpunni OG þið ætlið að láta það fólk, og þar með alla, sjóða!
Er von að maður reiðist... ekkert ykkar stendur í lappirnar og drepið málum einfaldlega á dreif. Hverjum er t.d. ekki sama, Svanhvít Svavarsdóttir, hvernig þú túlkar hvatningarorð forseta til þingsins að afgreiða stjórnarskrármálið - Sem þú gerðir að umfjöllunarefni á þingi í gærkvöldi. Þvílíkur og annar eins tittlingaskítur. Í fyrsta lagi, forsetinn hafði rétt fyrir sér, það vill enginn að þið hundsið þetta fram yfir forsetakosningar og í öðru lagi ÞÁ ER ÞETTA SMÁATRIÐI. Djöfulsins vitleysa sem það var að hlusta á þetta.
ENGINN stjórnarliða sem ég heyrði upp talaði beint um lánavanda heimilanna, verðtryggingarbálið eða 34.000 undirskriftir sem afhentar voru á laugardaginn ENGINN. Er von að maður vilji reka þetta lið og ráða einhvern - Bara EINHVERN - Jafnvel lesblindan grínista í staðinn. Börnin mín á barnaskólaaldri mundu standa sig betur. Þau hafa þó prinsipp.
|
Samstaða á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2011 | 16:40
Guðmundur: Að segja er ekki það sama og að gera!
Guðmundur Gunnarsson gerir sér enga grein fyrir muninum á því að meta það hvað fólk segir eða skrifar og því hvað það raunverulega skipuleggur og framkvæmir.
Hann skrifar tvær eða þrjár greinar sem hvetja til "Friðsamlegra mótmæla". Engan hávaða, engin hróp, engin búsáhöld, engan mótþróa - Bara að hlýða boðum og bönnum.
Í þessari fáránlegu MBL grein sýnir sig að ekkert af því sem var raunverulega SAGT í ræðunni sem vitnað er til (en ekki í) frá því á laugardaginn var, kemur fram. Engu er efnilslega mótmælt. Þessi grein er froðusnakk. Hún reynir að hreinsa einn mann af liðleskjuáburði með því að vitna til greina sem hann skrifaði en ekki aðgerðir. Greinar skrifa menn jafnan í pólitískum tilgangi, t.d. til að tryggja sér endurkjör. Aðgerðir fara menn í vegna þess að þeir eru leiðtogar.
Forystumenn eru í leiðtogahlutverkum vegna þess að fólk treystir þeim til aðgerða en ekki innantómra orða líkt. Við erum orðin vön því frá verkalýðsforystunni. Hvernig væri að taka á þeim efnisþáttum sem ræðan gekk út á í stað þess að benda á formsatriði (greinarskrif eftir Guðmund) sem engu máli skiptir?
|
Guðmundur: fáir að mótmæla |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.10.2011 | 20:09
RÚV sýnir fréttamyndir af a.m.k. 5000 manns en segir svo 2000 manns?
Það sést einna helst á því hvar í pólitík fjölmiðlarnir standa - nokkuð sem þeir eiga ekki að gera - á því hvaða reið þeir draga.
Í þessu tilviki stendur RÚV með ræflunum inni á Alþingi og arðránageiranum eins og hann leggur sig. Og hverjir borga þeim nauðugir fyrir að flytja uppspuna?
Við...
|
Eggjum kastað í þingmenn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.8.2011 | 15:32
Frestun aðfarar hefði aldrei náðst án aðgerða.
Mál þessarar fjölskyldu voru ekki til lykta leidd og bera átti hana út. Það hefði alveg pottþétt gengið eftir ef ekki hefði komið til inngrip Heimavarnarliðsins, þeirra sem kynnt höfðu sér lagahliðina á þessu og þrættu á staðnum á meðan liðið varnaði þessum drullusokkum (sem þrír saman snéru niður aldraðan mann á andlitið í götuna) og auðvitað fjölmiðlanna.
Arion hefur ekki efni á svona slæmri umfjöllun. Og ekki lögreglan heldur sem reiðir sig á stuðning almennings í kjarabaráttu sinni. Ekki styð ég þá framar. Ber við mig andliti gamla mannsins í götunni. Andskotans unglingsræflar sem fengnir voru til þessa. Ekki mikils virði þær "löggur". Hrottar öllu fremur.
Ég varð fyrir gríðarlegum vonbriðgum með þessa einkennisklæddu stráka og stelpurnar í þeirra hóp voru engu skárri. Alveg bláeygar um ýmsar reglur sem þeim var skylt að fara eftir.
|
Aðgerðum lokið við Breiðagerði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2011 | 11:38
Frekar fáránlegt á alla vegu.
|
Í fangelsi fyrir Facebook-síðu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2011 | 17:08
Smá villa þarna hjá Palla stuð
|
Mikil umræða um orð Páls Óskars |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2011 | 16:50
Bömmer - Leitt að heyra...
|
Flugfélag hélt júdóköppum á fósturjörðinni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2011 | 00:17
Gera það samhliða því að bæta kennsluna.
Let's face it - Hverjum finnst yfirferðin í skólum vera sligandi? Það sem er mest sligandi er að markið er sett lágt. Strákarnri mínir voru í skóla í einu lélegast fylki Bandaríkjanna (þótt skólinn hafi reyndar verið í þriðja sæti í fylkinu, Georgíu) og námið hér er ótrúlegt gutl miðað við keyrsluna þar. Ýmislegt var ekki í lagi úti en kröfurnar í raunfögum sérstaklega voru mun meiri þar en hér og getan eftir því, og það í almenningsskóla (ekki einkareknum).
Gallinn er að ekki "má" stugga við kennurum hér. Stéttin getur alls ekki tekið gagnrýni (sem er náttúrulega íónískt í meira lagi) - Eða eigum við öllu heldur að segja þau yfirvöld sem eiga að setja markmiðin og setja kúrsinn geta það ekki?
|
Skyldunám verði lengt um 2 ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.5.2011 | 10:49
Öllu heldur eru Íslendingar þægastir í taumi
Sinnulausir? Þægir í taumi? Fórnarlambsáráttusæknir?
Erum við líklegust allra til að láta vaða yfir okkur? Eða erum við bara líklegust til að refsa fólki með orðum? Er það ekki sami hluturinn?
Grrr... ég er enn reiður yfir eftirgjöf ríkisstjórnarinnar við þá sem þeir gáfu nýju bankana - Skotleyfið sem þeir gáfu þeim á almenning gegn því að losa ríkisstjórnina við þá ábyrgð að þurfa að taka á málunum. Eru það nú aumingjar! Djöfulsinshelvíti... og það vísvitandi! Grr.... þetta skemmir út frá sér. Finna zenið... zenið... vera fórnarlambsáráttusækinn. Hugleiða. Gera ekkert. Þetta gengur yfir. Eða ekki...
|
Ísland friðsælasta land heims |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Rúnar Þór Þórarinsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
runarogmaria
-
toti1940
-
trassinn
-
thoragudmanns
-
disdis
-
jenfo
-
hlynurh
-
eirag
-
lehamzdr
-
kleopatra
-
sibba
-
hlini
-
kreppan
-
maggib
-
dofri
-
49beaverbrook
-
omarragnarsson
-
haukurn
-
larahanna
-
gmaria
-
susannasvava
-
konnster
-
godaholl
-
skodun
-
thoragud
-
gussi
-
robertb
-
nanna
-
bjarnihardar
-
killjoker
-
skarfur
-
jonb
-
jonhalldor
-
joik7
-
brylli
-
gullvagninn
-
manisvans
-
gullib58
-
holmdish
-
haugur
-
dadihrafnkelsson
-
gorgeir
-
einaroddur
-
ninaos
-
raggiraf
-
hlf
-
svartur
-
joihallgrimss
-
hoskars
-
haddih
-
brell
-
juliusbearsson
-
jgfreemaninternational
-
maeglika
-
olii
-
sumri
-
thj41
-
graenaloppan
-
vilhjalmurarnason
-
kikka
-
gummi-p
-
kvistur
-
rosalinda
-
siggi-hrellir
-
gudborg
-
smg
-
redaxe
-
snjolfur
-
reykur
-
birgitta
-
gattin
-
doggpals
-
emilkr
-
tungirtankar
-
ea
-
gretarogoskar
-
hreinn23
-
gbo
-
halldojo
-
veravakandi
-
hildurhelgas
-
drum
-
daliaa
-
fun
-
jas
-
jonfinnbogason
-
jhe
-
krilli
-
grjonaldo
-
snorrima
-
sveinnhj
-
tara
-
vallidjofull
-
oddikennari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 58580
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


