Ástand notað til að útvíkka heimildir til að níðast á eigin fólki

Neyðarástand er ævinlega notað af stjórnvöldum til að vernda sjálf sig gegn sínum skeinuhættustu óvinum - sínum eigin þegnum. Snorri er hér að marséra í takt við gæsagang Bruna B.B. Eins og sést hefur undanfarna daga hefur löggjafinn verið duglegur við að koma þessu að og vorkenna sjálfum sér í stað þess að gera hið eina rétta og boða til kosninga í gjörbreyttu þjóðfélagi. Ef þeir eru svo frábærir, hvað hafa þeir að skelfast í kosningum? Eiga þeir ekki öruggt sæti?

 

Sjáið seinni hluta þessa myndbands:

 

Noam Chomsky fer yfir þetta nokkuð vel. Stjórnvöld um allan heim fögnuðu áhrifum 9/11 í þessum skilningi, Birni Bjarnasyni varð ekki kápan úr því klæðinu heima og þessvegna er ekki búið að verða mótmælendum að bana í áhlaupum lögreglu á þá. Fólk er að nota skyr, egg, sleifar með réttsýni og hugrekki á móti kylfum, táragasi, piparúða og skipulögðum, óeirðaþjálfuðum sérsveitarmönnum. Hin móralski sigur verður alltaf fólksins og ef lögreglan gerir skyldu sína og ekki fleiri afglöp en hægt er að fyrirgefa (munum að menn fara í lögguna til að standa í þessu, eru á launum við þetta) mun hún standa hnarreist eftir líka.

 

Lögreglan gæti leyft sér, líkt og Snorri er hér að óska eftir að vera kleyft, að vera kleift að níðast á þúsundum vegna of djarfrar framgöngu nokkurra tuga mótmælenda. Hann ætti að byrja að hugsa um það nú þegar að í hinu Nýja og ÓUMFLÝJANLEGA Íslandi sem upp mun rísa mun slík óeirðalögregla ekki vera vinsæl. Ég efast reyndar um að þeir fái vinnu framar og verði fremur dregin saman seglin.


mbl.is Lífsnauðsyn að auka fjárveitingar til lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rúnar Þór Þórarinsson

Höfundur

Rúnar Þór Þórarinsson
Rúnar Þór Þórarinsson
Leikjahönnuður m.m.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Búinn að fá bita hjá öllum!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 60301

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband