Færsluflokkur: Bloggar

Bla, bla, væl, væl, bla, bla, væl...

Heimsheimskan þín er dauð Pétur Blöndal, reyndu að komast yfir það gamli íhaldsskúrkur.

 

IMF láninu verður safnað saman á einn stað á hæstu mögulegu vöxtum (er það ekki hjá Seðlabankanum?) og ekki krónu af því eytt. Svo skilum við því ÖLLU SAMAN þegar alþjóðasamfélagið er hætt að míga í buxurnar af skelfingu - Nákvæmlega eins og Fjármála-Steingríman okkar er að básúna. Ekki meira sukk. Í myrkum íhaldsskugganum hefðu IMF peningarnir auðvitað ratað beint í Sjálfslæðismannavasa, verktakafyrirtækja á þeirra vegum, spilltra bankamanna og eiginhagsmunaseggja.

 

Og hvernig vitum við það? Jú, Sjálfslæðisfokkurinn er ENN EKKI búinn að ná því hvað þeirra heimssýn er dauð og grafin og álíta þetta fall vera afleiðingu ófullkomins áróðurs (vöntun á upplýsingum). Það þarf að ganga á lagið og taka flokkinn af lífi. Á meðan þeir ekki hafa áttað sig munu þeir ekki breyta hegðun sinni. Aldrei hefur verið jafn rangt að kenna flokkinn við sjálfstæði og akkúrat nú. Hvað passar betur? Þrjóskuflokkurinn? Valdaþynnkuflokkurinn? Afneitunarflokkurinn? Áfallaflokkurinn? Nauðungaruppboðsflokkurinn? Eða bara Sjálfslæðishelvítisfokkingfokkurinn?

 

Brátt verður komið Annað Lýðveldið á Íslandi. Nýtt þing, ný stjórnarskrá, framtíð sem snýst um fólkið og virkt lýðræði og beint lýðræði þar sem því verður við komið. Húrra fyrir hinum almenna borgara!


mbl.is Pétur Blöndal ákallar Ögmund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingisleikhúsið, vordagskrá 2009

Einar K. Guðfinnsson gaf tóninn fyrir áframhaldandi fávitaskap með því að taka stóra pólitíska ákvörðun á leiðinni út um dyrnar með skófarið enn á afturendanum. Áttum okkur á því að ég er fylgjandi nýtingu þessa stofns. En svona ákvörðun verður ekki tekin, hana Á EKKI AÐ TAKA í fússi eða vitleysu.

Þetta er meiriháttar ákvörðun í mörgum skilningi og það þarf að undirbúa t.d. hvernig á að markaðssetja þessa ákvörðun erlendis svo við græðum á þessu í raun og veru.

Leikhús Alþingis hélt merkilega áfram að spjalla um þetta - Pirrandi að sjá sömu gömlu andlitin í sömu gömlu stólunum, smá hrókeringar bara, en þessu verður breytt í Apríl.

 

Því verður breytt, því verður breytt. Stinga eldspýtunum niður í skúffu þar til seinna í vor allavegana.


mbl.is Hvalveiðar til umræðu á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendi sterkustu mögulegu hvatningu

Ótrúlegur styrkur sem Ari sýnir þjóðinni í fjölmiðlum. Slæm örlög auðvitað að lenda í því að menn greini ekki sjúkdóminn rétt miklu fyrr, það er ekki auðvelt að deila við læknana þ.s. þeir EIGA finnst manni að vita svona lagað og taka miklum sársauka alvarlega.

 

Gangi þér vel að baksa við þetta Ari - Stuðningskveðjur.


mbl.is Martröð varð að veruleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Come on... bara EITT kraftaverk

Sjálfstæðisflokknum tókst með fulltingi Framsóknar að koma þjóðinnni úr 90 milljarða heildarskuld í 2.150 milljarða skuld á aðeins 16 árum OG að tapa frá sér fiskinum í hafinu, orkunni úr vatnsföllunum, samskiptanetinu og fleiru sem þjóðin átti.

 

M.ö.o. þetta kostaði þjóðina yfir 2000 milljarða OG verðmætustu efnislegu eigur sínar. ÞAÐ er KRAFTAVERK. Svona getur enginn mannlegur máttur klúðrað.

 

Þessvegna er eitt pínulítið kraftaverk alveg lágmark. Hvernig væri að taka kvótann t.d. aftur til þjóðarinnar sem á hann?Þið gátuð tekið bankana aftur án "neinna" vandræða.


mbl.is Lofum engum kraftaverkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáum nú hversu duglega hann getur klúðrað þessu.

OK, er strákurinn að fara á taugum strax? Sjálfstæðismenn í viðtölum hægri vinstri á ríkisfjölmiðlunum og mogganum, Samfylking og auðvitað VG fjarri. Þeir eru ekki að tvínóna við að nota sér óheftan fjölmiðlaaðgang og vinveitta fréttamenn.

 

Fylgjumst nú með Framsóknarsparðinu, hvort það helst inni eða hvort það gægist út.

 

Ef þeir eru í alvörunni að skoða málin finnst mér það bara eðlilegt og gott. Stjórnarflokkarnir tveir ættu þá að taka undir það með honum og hjálpa Framsókn að ná fylgi af Sjálfslæðisfokknum. Maður gerir allt til að losna við krabbamein.


mbl.is Ósætti um aðgerðirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öld negranna?

Öld hins sjúka, hvíta mannsins er liðin.

Ætli nú sé komið að súkkulaðinu?

Ég hefði reyndar giskað á gula kynþáttinn.

Eða er svona pæling bara frá 19. öld í sjálfri sér og fáum við regnboga með kynvillingum og kapítal-kommúnistum?

Þetta er allt bull. Kominn tími til að safna öllum bannorðunum fyrir í einn blogg og sjá hvað verður hvasst. Smá upphitun núna, geri það næst.


mbl.is Steele eggjar sína menn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

A Hundred Days of (Muted) Rage

Hverskonar fávitafrétt er þetta eiginlega að éta svona upp eftir horsætisráðherranum fráfarandi?

Stjórnin féll því fólkið bylti henni. Hér er grein úr vefritinu "Counter Punch":

A Hundred Days of (Muted) Rage

"..the Icelandic example provides powerful instruction that, when a people reject violence and take up a struggle together, they can still actually win."

Geir (og sjálfslæðismenn allir sem einn) hlustaðu nú - ÞJÓÐIN SEGIR: ÞÚ.... ERT.... REKINN!

Það hefur ekkert með Samfylkinguna að gera, hversu mikið sem þú gaular um það eftirá. Núverandi stjórn verður hent út sömuleiðis ef hún gerir ekki það sem hún Á AÐ GERA. Ég hef grun um að hún átti sig hinsvegar á því, andstætt þér og þínum.

Ekki nóg með það, geri þau rétt og setji stjórnlagaþing verður þeirra minnst sem "landsfeðranna " líkt og B. Franklin, Washington og þeirra fornu frægðarmanna hér í Bandaríkjunum.Og eins og ég skrifaði fyrir löngu verður Sjálfslæðisfokksins minnst sem "Helvítis fokking fokks", og þín, Davíðs og annarra utanþings-hugmyndasmiða þjóðargjaldþrotsins s.s. Hannesar Hólmsteins, Hannesar Smara, Sigurðar Einarssonar og co. verður minnst í sömu andrá og brennuvarga og landráðamanna Sturlungaaldar.

Til hamingju með það. Æðisleg arfleifð!


mbl.is Geir: Stjórnuðust af hatri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísraelssleikjan fær það óþvegið

Að sjá stjórnandann reyna að vaða yfir tyrkjann með því að gefa Shimon Peres allan þann tíma sem hann langar.

Þetta er ein leið til að höndla það - taka ekki þátt í svona ruglráðstefnu.


mbl.is Erdogan strunsaði út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

36.000 or bust! Yes we can!

Ég bara VEIT að við komumst upp í 36.000 atvinnulausa einstaklinga! 10% er ekki neitt, það er einhver kommúnistasvartsýnistala, hér er ALVÖRU kapítal-hörmung í gangi.

Keyrum þetta kerfi fyrir björg og kennum VG og Samfylkingunni um. Sjáið að þeir eru að mynda nýja stjórn á örfáum dögum og Davíð Oddsson og félagar neyddust til að ákveða ekki að lækka stýrivexti og Þorgerður Katrín kenndi stjórnarkreppunni um. Þetta er hægt - Herma eftir Þorgerði og bara gera sig rangeyga(n) og horfa niður eftir nefinu á naflann, þaðan halda áfram niður klofið og upp rassinn, klífa útskitið bakið og þá getur maður óvænt komið aftan að sjálfum sér!


mbl.is 18.000 á atvinnuleysisskránni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Rúnar Þór Þórarinsson

Höfundur

Rúnar Þór Þórarinsson
Rúnar Þór Þórarinsson
Leikjahönnuður m.m.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Búinn að fá bita hjá öllum!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband