Færsluflokkur: Bloggar
29.1.2009 | 18:13
Ítarlegri fréttaflutning takk (edit)
Sigmundur og félagar í Framsókn þurfa að láta kné fylgja kviði. Þeir voru fyrstir til að taka ákvörðun um að hreinsa almennilega til á dekkinu, spúla og fá nýtt lið sem VIRÐIST ekki vera þetta "sama gamla spillingarpakk".
Keyra á stjórnlagaþingið. Keyra á umbótum. Breytingar er það sem fólk vill í dag. Fortíðin er dauð, Íslendingar búa varla í sama landi og áður, eða öllu heldur, hið nýja braust skyndilega undan vetri Davíðs Oddssonar og lemmingasveitar hans.
Eiginlega bráðfyndin samlíking með lemmingana þótt ég segi sjálfur frá. Að þramma í blindni fram af hamrinum er einmitt leiðtogadýrkun sjallans í hnotskurn.
Edit: Þetta yfirlit Moggans á þeim orðum sem hann lét falla á alþingi í dag er yfirborðskennt miðað við þau orð sem Sigmundur lét falla. Yfirferðin var mun meiri og mjög jákvæð og ég hvet fólk til að hlusta t.d. á síðdegisfréttir á RÚV í dag, 29. janúar. Svona á að koma inn í pólitíkina!
Ekki óskaríkisstjórn Sigmundar Davíðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2009 | 17:58
Framsókn fær prik... héltégmyndialdreisegjaða
Olræt - Ef þetta var eitt af skilyrðunum fyrir að styðja þessa ríkisstjórn, þá er það bara frábært.
Etv. skynjar Sigmundur að okkur í landinu er skítsama um flokkana sem við eitt sinn studdum. Það sem við nú þurfum er ný stjórnarskrá og ný kosningalög. Ábyrg embættisskipunarstefna, efling réttlætisviðhorfa og lækning siðblindu á landsvísu.
Svei mér, ætli ég gefi Simma og co. ekki bara ÞRJÚ prik fyrir! Og svo Steina og Jóu og þeirra liði sitthvort fyrir að vera ekki með neina vitleysu. Kannski þau sjái dagrenninguna líka?
Samþykkja stjórnlagaþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2009 | 03:07
Repúblikanar ruglaðir
Ef þið væruð í Bandaríkjunum...
Hér er í alvörunni flokkur í landinu sem er með næstum 50% fylgi sem trúir því ENN að skattalækkanir á hátekjufólk sé eina leiðin til að rétta fjárhaginn af.
Allar hugsjónir og draumar þeirra, líkt og sjálfstæðismanna heima, hafa nánast gengið af þjóðinni dauðri, og samt eru stórir hópar kjósenda hér, líkt og heima nógu miklir hálfvitar til að trúa að þeir séu rétta liðið til að bjarga málunum.
Ég beini því til kjósenda sjálfstæðisflokks og framsóknar að við fyrirgefum þeim afglöp fortíðarinnar - ykkur er vorkunn því yfirhylmingin var MJÖG professional - en að því tilskildu að þeir bæti nú fyrir. Ég beini því til kjósenda hinna flokkanna að þvingan nú sína menn til að setja stjórnlagaþing á stofn og manna það stórum hópi sérfræðinga af Íslandi - okkar hæfasta fólki - og taka grunneiningar stjórnkerfisins í gegn. Ég vil hvetja almenning til að láta minnihlutastjórnina vita svo ekki verði um villst að við erum ekki að hvetja ríkisstjórnina til dáða af því að við viljum ÞAU endilega, heldur að við vitum að ÞAU eru eina fólkið sem mögulega mun standa fyrir gerð réttlátra kosningalaga, eðlilegrar stjórnarskrár, standa fyrir greinilegum aðskilnaði framkvæmda- löggjafar- og dómsvalds í eitt skipti fyrir öll og í gegnum það endurlífga þær hugsjónir sem ríkisstjórn sjálfstæðisflokks og framsóknar hafa afskræmt og nauðgað í gegnum árin.
Þá opnast fyrir möguleika á því að við veitum þeim áframhaldandi umboð að kosningum loknum, því engin verk stæðu þessum jafnfætis.
819 milljarða framlag samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.1.2009 | 02:48
Þessvegna þurftu þeir að lána sjálfum sér 280 milljarða kr?
Reality check - Hálfu ári eftir að Kaupþing þverneitaði mér um 900.000 króna lán í íslenskum krónum til að klára húsaviðgerðir gegn veði í húsinu sem nam aðeins 58% lána þeir innanbúðarmanni sem er að tapa sem nemur þeirri upphæð tíundu hverja mínútu 280 milljarða króna út á veð sem hafa hrunið í verði mánuðum saman.
Og greiða inn á reikninga hans í skattaparadís.
Skjóta því undan.
Og hverjir leggja féð til? - Íslendingar með framseldum kvóta, gjaldþroti sjávarútvegsins, leikaraskap með gengið á kostnað þjóðarinnar, lífeyrissjóðasvindli o.s.fr.v.
Er Sigurður algerlega blindur? Er enginn með lagalegt skotleyfi á þennan mann og rindilinn sem er með honum þarna á myndinni?
Þeir unnu undir vernd þáverandi stjórnarflokks, seðalbankans og FME - Sjáum hvernig þeim reiðir af nú þegar nýtt fólk tekur við og tugþúsundir íslendinga hafa glatað öllu til að gera þá ríka og geta EKKI BEÐIÐ eftir að ná í hnakkadrambið á þeim og brenna af þeim hnakkaspikið.
Atlaga felldi íslenska kerfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.1.2009 | 05:47
Hann er galdramaður!
Ók á kirkjuþak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2009 | 16:58
Missið ekki sjónar á boltanum
Þetta er moldviðri. Veitið þessu svona passlega athygli. Haldið athyglinni þar sem hún þarf að vera - Á því hvaða UMBÆTUR á grunnkerfum þjóðarinnar fara fram!
Allt annað skiptir í raun litlu máli, það er á okkar ábyrgð að afkomendur okkar taki hér við góðu landi, næsti áratugur a.m.k. er undirlagður fjárhagslegri eymd og volæði í boði ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.
Gangið þannig frá að næsta árhundrað verði tímabil stolts, atorku og bjartsýni í boði Fólksins.
Ásaka hvert annað um hroka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.1.2009 | 16:48
"Lenti í hremmingum" - NEI ALDEILIS EKKI
Það veit hvert mannsbarn að þessar hremmingar sem þjóðin "lenti í" voru ekki utanaðkomandi eins og greinarritari vill vera láta.
Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknar voru búnar að vera sem krabbamein á þjóðinni í meira en áratug og búnar að gjöreyðileggja hér allt kerfisbundið, með hugsjónageðsjúklinga nýfrjálshyggjunnar innanborðs.
Við "lentum" ekki í neinu. Til þessara hörmunga var boðið í nafni grægði, fyrirhyggju- og skefjaleysis. Þessir þingmenn geta bitið úr nálinni með það og að lokum:
VÆRI MOGGINN TIL Í AÐ HÆTTA AÐ REYNA AÐ INNPRENTA ÞJÓÐINNI HEIMSKU - VIÐ HÖFUM FENGIÐ NÓG AF ÞVÍ!
Baksvið: Þingvallastjórnina þraut örendið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.1.2009 | 04:00
Blásum þetta út þ.s. þetta skiptir ENGU MÁLI
Djöfulli getur fólk verið heimskt! Þetta kemur framgangi byltingarinnar ekkert við. Auðvitað á fólk ekki að segja svona, eins og það geri sér það ekki ljóst þegar það les þetta. Maðurinn er veikur, end of story.
Þetta breytir engu fyrir það sem gera þarf, held reyndar að Geir myndi segja það þótt hann væri mér ósammála um HVAÐ þyrfti að gera.
Að gefa Mogganum og samsuðsbloggurunum úr íhaldinu færi á því að drepa málinu svona á dreif er alveg með ólíkindum. Þetta deyr sem betur fer út eftir nokkra daga ef fólk er ekki alveg heiladautt og nú, í fyrsta skipti árum saman, líður mér eins og þjóðin sé ekki í einhverju bölvuðu móki.
Burt með Geir og alla hans ríkisstjórn, Seðlabankastjórn, Fjármá.... ó, þeir eru víst farnir... OK, allt þetta lið, í steininn með Hreiðar Má & co. Peningana OKKAR frá Lúxembúrg, bananalýðveldum og Cayman eyjum og aftur upp á klakann.
En helst af öllu - Nýja stjórnarskrá, nýtt Ísland!
Ekki farin að finna til með honum ennþá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2009 | 02:34
Okkur er sama!
Þetta snýst ekki um Vinstri Græn - Örvæntingarfull tilraun Björns Bjarnasonar til að draga flokkapólitíkina á mitt sviðið er dæmd til að mistakast.
VG, Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin eru ekki lausnin. Björn vill viðhalda því sem þjóðin vill skilja að baki og mun reyna að draga þá fram í sviðsljósið við hvert tækifæri. Kolkrabbinn mun verða kyrktur fyrir vorið nú endanlega og bölvaður smokkfiskurinn hans Björgólfs í leiðinni. Við göngum af þessu öllu dauðu án þess að úthella einum einasta blóðdropa eða misbjóða annarri gangstéttarhellu.
Það sem þetta þarf að snúast um fyrst og fremst er að finna á http://www.nyttlydveldi.is og hér er það sem ég hef um það að segja í bili.
Segir þingmenn VG hafa veist að lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2009 | 22:59
Örvænting stjórnmálamanns - Rispuð plata
Góðir Íslendingar
Björn Bjarnason og stjórnmálamenn gærdagsins forðast í lengstu lög að nefna meginkröfu mótmælenda til framtíðarskipunar lýðveldisins, og það er breiðfylking fólks á bakvið nýja stjórnarskrá og gjörbreytingu á kosningakerfi lýðveldisins.
LÁTIÐ EKKI BLEKKJAST - Þeir munu þyrla ryki í augu ykkar með því að halda áfram að þvæla og vísa ykkur inn í speglasal gömlu stjórnmálaflokkanna, en nú þarf fyrst að halda á spöðunum í mótmælum. Þessir gaurar geta ekki séð þetta fyrir sér - þetta er martröð flokkanna - Við þurfum þetta - Við viljum þetta - Við neyðumst til að gera þetta sjálf!
Góðir Íslendingar, skiljið flokkapólitíkina eftir í fortíðinni þar sem hún á heima, hundsið þessa rykföllnu gúrúa og myndið nýtt íslenskt lýðveldi. Þeir vilja það ekki og beita sama gamla fyrsta vopninu - Þeir minnast ekki á það.
Fjölmiðlafólk þarf að hafa bein í nefinu - Sjáið kauða guggna í samtali sínu við Geir H. Haarde þar sem hann ætlaði greinilega að fara að spyrja um þetta en rann síðan inn í gamla, kunnuglega spurningafarveginn... þetta gengur ekki.
Fyrir mitt leyti er mér sk*tsama hver tekur við í núverandi kerfi. Það mun þetta alltaf leiða til samskonar spillingar því þannig er búið um hlutina. Því verður það að breytast.
Kynnið ykkur málið á Nýtt Lýðveldi.
Upphaf á kosningabaráttunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Rúnar Þór Þórarinsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- runarogmaria
- toti1940
- trassinn
- thoragudmanns
- disdis
- jenfo
- hlynurh
- eirag
- lehamzdr
- sibba
- hlini
- kreppan
- maggib
- dofri
- omarragnarsson
- haukurn
- larahanna
- gmaria
- susannasvava
- godaholl
- skodun
- thoragud
- gussi
- robertb
- nanna
- bjarnihardar
- killjoker
- skarfur
- jonb
- jonhalldor
- joik7
- brylli
- gullvagninn
- manisvans
- gullib58
- holmdish
- haugur
- dadihrafnkelsson
- gorgeir
- einaroddur
- ninaos
- raggiraf
- hlf
- svartur
- joihallgrimss
- hoskars
- haddih
- brell
- juliusbearsson
- jgfreemaninternational
- maeglika
- olii
- sumri
- thj41
- graenaloppan
- vilhjalmurarnason
- kikka
- gummi-p
- kvistur
- rosalinda
- siggi-hrellir
- gudborg
- smg
- redaxe
- snjolfur
- reykur
- birgitta
- gattin
- doggpals
- emilkr
- tungirtankar
- ea
- gretarogoskar
- hreinn23
- gbo
- halldojo
- veravakandi
- hildurhelgas
- drum
- daliaa
- fun
- jas
- jonfinnbogason
- jhe
- krilli
- grjonaldo
- snorrima
- sveinnhj
- tara
- vallidjofull
- oddikennari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar