Færsluflokkur: Bloggar

Að vinna vinnuna sína

Ég tileinka þenna blogg þeim sem eru að vinna vinnuna sína:

Fjöldafunda mótmælendur með áherslu á málefnin: Þetta eru Raddir Fólksins. Þau eru stjórnmálaarmur Sinn Fein -Tala skýrt og skiljanlega. Þeir vinna vinnuna sína - Skynsemisvinna

Fjölmiðlar: Loks búnir að taka við sér eftir áratugarsleikjuskap við fjármálafylleríið. Mikið leið mönnum vel þá, loksins eru þeir að vinna vinnuna sína .

Ofbeldisfullir mótmælendur: Þetta er fólkið sem ekkert gerist án. Hver maður man ekki þá stöðu að flokkarnir ætluðu fyrir viku síðan að sitja út kjörtímabilið. Þeir eru ekki að ganga yfir strikið að neinu verulegu leyti, fyrir utan nokkrar gangstéttarhellur sem fengu að fljúga. Þetta fólk er að vinna vinnuna sína og ljá orðum Radda Fólksins brodd og kraft. Það er ekki hægt að líta framhjá því að þetta ofbeldi er algerlega nauðsynlegt til að gera fólkinu sem situr í skjóli gallaðra laga ljóst, að Fólkið Er Lögin. Þetta fólk er að vinna vinnuna sína.

Appelsínugulir:  Forða skal meiðslum á fólki í lengstu lög. Þetta réttsýna hugrakka og friðsæla fólk stendur á milli ofbeldismanna og þeirra sem stjórnvöld stilla fyrir framan sig til að verja sig í nafni eigna þjóðarinnar eins og t.d. þess að "alþingishúsið má ekki brenna". Þetta fólk er að færa ofbeldið nokkra metra fjær lögreglunni, forða því að byltingin fari að snúast um fórnarlömb og fókusinn haldist á framtíðinni. Þetta fólk er að vinna vinnuna sína.

Lögreglan: Þetta fólk er ekki síður hugað. Það hefur skrifað upp á að viðhalda lögum og reglum sem í hinum fullkomna heimi endurspeglar vilja fólksins - Lögin eru þjóðin í hinum fullkomna heimi. Yfirleitt eru þeir að fylgja eftir lögum sem sett eru og virka í þágu borgaranna. Hinsvegar eru þeir í erfiðri aðstöðu þegar lögreglan veit að lögin, umgjörðin og afleiðingar laganna eru orðin rotin. Lögreglan hinsvegar þarf að vinna fólki tíma til að gera það sem rétt er. Lögreglan þarf líka að beita ofbeldi á móti öfgamönnum úr hópi mótmælenda - Án lögreglunnar hefur valdstjórnin enga vernd, og svoleiðis á það etv. að vera. Hinsvegar, á meðan lögreglan hangir inni sem andlit valdstjórnarinnar og reiðinni beint að henni veitist mönnum dýrmætur tími til að bregðast við óróa. Þann tíma þarf bara að nota. Hinsvegar velkist enginn í vafa um að lögreglan er að vinna vinnuna sína.

 

Ég gæti bætt við nokkrum málsgreinum um þá sem eru EKKI að vinna vinnuna sína. En ég vil tileinka þennan blogg því fólki sem er að leika sitt hlutverk í byltingunni - Bæði þeim sem drífa hana áfram með líkamlegu afli, óforsjálni og viðspyrnu eða með því að tala fyrir hana eða til að tempra hana.


mbl.is Mótmælt á tveimur stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfella samvisku og hagsýni

Það kemur sér vel fyrir Samfylkinguna að Björgvin segi af sér. Hann býr í haginn fyrir sína eigin pólitísku framtíð með þessu. Hefði verið margfalt sterkari aðgerð fyrir 6 til 7 dögum áður en endanlega upp úr sauð í kjölfar þess sem kom upp úr kafinu með Kaupþing og hina svokölluðu "fjármögnun" þeirra frá furstanum eins og úr 1001 nótt og innherjalánastarfsemi upp á tugmilljarða þegar almenningur hafði ekki getað fengið lán fyrir einföldum og sjálfsögðum hlutum í heilt ár.

Auðvitað hefði verið sterkara pólitískt séð fyrir Björgvin að segja af sér fyrir það.

Eftir allt hans klúður, þarf maður að spyrja sig hver vel Björgvin var upplýstur um stöðu mála. Mér finnst hans ferill lykta af blóraböggulshlutverkinu. Munum að Björgvin er sá eini á alþingi situr sem tók t.d. sín lán í erlendri mynt en það fólk er að fara LANGverst út úr málum. Á einhvern undraverðan hátt, þá var virtust ALLIR á þingi hafa nasaþef af því hvert stefndi án þess að segja nokkurn skapaðan hlut við almenna borgara en: "Hér ríkir botnlaust góðæri. Bölspár eru lygar og áróður erlendra manna sem vilja okkur illt. Brjálaðra auðmanna sem vilja knésetja okkur."

Staðreyndin varð hinsvegar sú að verið var að standa vörð um innlenda auðmenn sem knésettu okkur. Og hvar stóð Björgvin í því? Hann tók sér og fjölskyldu sinni lán af versta mögulega tagi og lenti jafn illa út úr þessu og sá hluti þjóðarinnar sem nú er verst staddur.

Ég veit reyndar ekki um hagi Björgvins nákvæmlega, etv. er hann kvótaerfingi með silfurskeið í munni og er sk*tsama þótt hann borgi margfalt upphaflegt verð fyrir íbúðina. Kannski ekki. Horfa þarf þó í það að Björgvin hefur ætíð sagst ætla sér að taka ábyrgð á þessu klúðri, HANN TEKUR ÁBYRGÐ eftir að hafa reynt að veita hruninu viðspyrnu OG REKUR FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ Í LEIÐINNI.

Fólk sem er að blogga um þetta og hatast sem mest við Björgvin þyrfti nú aðeins að slaka á og sjá að hann er að taka pólitíska ábyrgð og láta undan kröfum almennings um að skipta um í brúnni. Hann er farinn, FME er farið...

 

Nú eru eftir Seðlabankinn, ríkisstjórnin, flokkarnir (sumir öðrum fremur) - köllum þessa þrennu skipuleggjendur Auðræðisins - eigendur og fjárglæframenn bankanna sem eiga eftir að bíta úr nálinni með sína spillingu. ÞETTA SKAL ALLT ÚT.

 

Að síðustu er það svo ENDURFÆÐINGIN sjálf sem er eftir, og trompar allt framangreind formsatriði, en það er endurritun stjórnarskrárinnar, nútímavæðing valdakerfisins, hönnun sjálfsleiðréttingar kerfisins og sanngjarnt og einlægt uppgjör við fortíðina sem VIÐ ÖLL vorum virkir þáttakendur í - Lýðskrums, siðblindu og sinnuleysis gagnvart henni, verðmætamats og sjálfsblekkingar. Sú tíð er liðin að ég og aðrir borgarar friðþægjumst við að bölsótast út í spillingu og siðblindu sem við horfum breiðast út um samfélagið - Deila um það og og hneykslast, rífast á kaffistöðum, skipum, fólksflutningabifreiðum og flugvélum hvort sem mælt er gegn gjaldi eður ei, eins og þar stendur.

 

RÍFA ÞARF UPP MEÐ RÓTUM! HÉR VERÐUR EKKI LÁTIÐ STAÐAR NUMIÐ FYRR EN BYLTINGUNNI ER LOKIÐ AÐ FULLU!


mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímamótaverkefni!

Þetta er algerlega nauðsynlegt - Mun nauðsynlegra en annað sem þarf að taka á.

Hér þarf að tryggja að ekki sé tjaldað til einnar nætur með framtíð landsins, heldur þarf að ráðast að rót vandans sem er ósjálfstæði löggjafarvalds og framkvæmdarvalds gagnvart hvoru öðru.

Það fólk sem stýrði hér landinu í þrot var í raun, ef svo má segja, ekki sjálfrátt heldur er skipbrot sem þetta óhjákvæmileg afleiðing gallaðs forms. Formenn flokkanna, sem iðulega eru ráðherra/framkvæmdavaldið, eru sama fólkið í núverandi formi og leggur fram lögin. Þeir flokksmenn sem rísa gegn formanninum/ráðherranum/frumvörpunum eru svo útskúfaðir sem uppreisnarseggir og liðleskjur - Tökum Kristinn H. Gunnarsson sem dæmi - Fylgdi ekki flokkslínunni og veitti virkt aðhald og var innan skamms eins og bastarðurinn sem flokkurinn skammaðist sín fyrir.

Ástæðan fyrir því að ég segi ÓHJÁKVÆMILEG er að ráðherrunum skjátlast eins og öðrum, og þurfa virkt, sjálfstætt og gagnrýnið aðhald fólks sem er sjálfstætt frá ráðherrunum.

Það er því ekkert vit í öðru en að koma á kerfi sem svipar til þess sem t.d. tíðkast í Bandaríkjunum, þar sem forsetinn og ráðuneyti hans starfar sjálfstætt gagnvart þinginu og öfugt. Það verður að eiga sér stað virk samræða á milli framkvæmdarvaldsins og löggjafans.

Sem stendur er lögþingið svo ósjálfstætt að þeir gætu alveg eins verið heima, og við sparað okkur að þurfa að greiða þingfararlaun til allra þessara þingmanna sem er gert að fara eftir því sem formennirnir segja eða kveðja frama sinn innan flokksins ella. Flokkskerfið íslenska stuðlar að því að þeir sem hafa sterkast hjarðeðlið veljast fremst í flokkana og hugsi á endanum sem minnst sjálfir og geri bara það sem þeim er sagt.  Ísland hefur ekkert við slíka "forystu" að gera.

Ef þetta er hinsvegar bætt, þá mun þetta lagast af sjálfu sér, þess er ég algerlega fullviss. Meðal annars vegna þess að ég held að fólk flest sem situr við stjórnvölinn ætli sér góða hluti en það sé ekki í mannlegu valdi að komast hjá hinu hræðilega heilaþvottaruppeldi sem flokkskerfið krefst.
mbl.is Hvítborðar boða Nýtt lýðveldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnir á samúðina með Ingibjörgu

Eða hvað? Minnir þetta þig ekki á alla samúðina sem Ingibjörg hefur fengið í sinni baráttu?

 

Eða minnir þetta kannski á það hvernig síðustu 10 mínútur fyrir tilkynningu Geirs í hádegisfréttum RÚV fóru í að skíta yfir samfylkinguna fyrir að vera ekki búin að gera hallarbyltingu á móti Ingibjörgu þ.s. hún hefur ekki getað verið 100% við stjórnvölinn upp á síðkastið. Vitna í allskyns "Flokkurinn er stjórnlaus." yfirlýsingar, og gera að því skónum að flokkurinn standi og falli með Ingibjörgu einni vegna þess að hún hefur ekki viljað stíga til hliðar sökum æxlismyndunar sem reyndist GÓÐKYNJA en ekki illkynja.

 

Kemur engum þetta spánskt fyrir sjónir - Geir kynnir þessar hræðilegu fréttir (sannarlega finn ég til samúðar með honum og fjölskyldu hans) fyrir miðstjórn sjálfstæðisflokksins, og þeir setja strax í gang með því að nýta sér ítökin á fréttastofunni til að undirstrika meinta arftakamenningu sjálfstæðisflokksins og bera hana saman við meint arftakaleysi  Samfylkingarinnar sem snýr ekki bakinu svo glatt við Ingibjörgu, sem er frömuður á margan hátt, þótt hún hafi misstigið sig nokkuð á síðasta ári.

 

Mér finnst þetta viðbjóðslegt, en það er ekki við öðru af sjálfstæðisflokknum að búast. Að nota umhyggju og hlýjar tilfinningar Samfylkingarinnar til síns formanns sem á í veikindum til þess að gefa í skyn að þau séu óstjórntæk en nota krabbameinið í sínum formanni (sem í raun endurspeglar flokkinn) til að undirstrika hvað þau séu æðisleg.

 

Veikindi eru bara veikindi. Vonum það besta fyrir sjúklingana og hættum að notfæra okkur veikindi þeirra til að níða þau niður og gera lífið erfiðara.

 

Góðan bata.


mbl.is Geir: Kosið í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak að tempra óhjákvæmilegt ofbeldi

Ég endurtek fyrirsögnina - Þetta er frábært framtak hjá friðsælum mótmælendum, ganga á milli grófustu ofbeldismannanna og tala við þá til að tempra aðgerðir þeirra.

 

Ofbeldisfullir mótmælendur er nauðsynlegur hluti mótmælanna, einfaldlega vegna þess að ekki er hægt að stjórna tilfinningum fólks þegar svo gróflega hefur verið unnið gegn því, nema að mótmælendurnir tempri sjálfa sig.

 

Ég þekki fólk sem SEGIST veigra sér við því að taka þátt vegna þess að það vilji ekki láta stimpla sig sem óeirðamenn. Hér er tækifæri þeirra komið. Verið virkir friðsælir mótmælendur og stuðlið að menntaðri mótspyrnu. Það græðir enginn á því að fleygja gangstéttarhellum, saur og hlandi í lögregluna eða að lögreglan noti táragas á mótmælendur... allavega ekki í of miklum mæli. Smáræðis átak af því tagi gerir hinsvegar sitt til að koma stjórnvöldum frá.

 

Það er dálítil þversögn í þessu öllu hjá mér Halo en það er líka hluti af þessu - Það er ekki einn maður eða einn hópur að mótmæla, hér er þjóðin öll í gangi, og ég er að fagna því að farvegur fyrir aggressífustu friðarsinnana hefur fundist!

 

Áfram Nýja Ísland!


mbl.is Appelsínugul og friðelskandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg kolvitlaus þessi fyrirsögn

Stjórnvöld eiga að vera dauðhrædd við fólkið. Allavega eftir síðustu daga.

 

Annars virka þau ekki (ekkert aðhald).

 

Trixið er að fela aðhaldið í lög þannig að til ofbeldis þurfi ekki að koma heldur verði slíkum tilfinningum veitt í lýðræðislegan farveg. Þar þurfa hugsjónir að ráða för en ekki eiginhagsmunir flokkanna sem setja lögin. Og þar liggur hundurinn grafinn. Stjórnarform landsins þarf að vera annað en nú er. Löggjafinn má ekki vera undir hæl framkvæmdavaldsins eins og nú er! Þetta kerfi er löngu úr sér gengið.

 

Hvernig förum við að þessu? Leggjum hart að minnihlutastjórninni sem mynduð verður að hún gangi frá því, og leggi drög að þeim stjórnarskrárbreytingum sem þörf er á til að það megi verða að veruleika. Og hvernig leggjum við hart að henni? Ef hún ætlar að reyna að sigla inn í nýjar kosningar án þessara breytinga, þá endurtekur fólk bara leikinn og lætur hana ekki komast upp með það.

 

Þjóðin má alls ekki ýta þessu vandamáli á undan sér, það kemur til uppgjörs fyrr en síðar og ég vil fremur að það verði á okkar vakt en hjá börnum okkar eða barnabörnum.

 

Áfram Ísland!


mbl.is „Eigum ekki að óttast þjóðina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TIL HELVÍTIS MEÐ VALDSTJÓRNINA!

NÚ ERU ÞEIR KOMNIR Á HNÉN!

HENDIÐ ÞEIM ÚT!

KEYRIÐ ÞÁ Í KAF!

FARIÐ Í BÆINN!

RÚSTIÐ ÞESSU RÍKISSTJÓRNARSKRÍPI!

ENDURNÝJIÐ ÍSLAND MEÐ ÖLLUM TILTÆKUM RÁÐUM!

SVARIÐ TÁRAGASINU!


mbl.is Lögregla beitti kylfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er andhverfan við mótmæli ekki meðmæli?

Menntamálaráðherra skilur kannski ekki orðið: "Mótmæli" ef henni finnst það ekki mega snúast upp í meðmæli Ninja Eða er það kannski "Meðmæli" sem hún ekki skilur? Eða er hún kannski bara að rugla í okkur með þessum kjánalegu kommentum í einhverjum óljósum tilgangi? Hvað fleira segir hún... "Við verðum að halda þessu kerfi okkar gangandi." - Þetta hlýtur að vera á misskilningi byggt líka því hún verður brátt ein um þá skoðun. Það er nákvæmlega það sem verið er að mótmæla svo kröftuglega.

 

"Við erum með traustan meirihluta á þingi", segir Geir. Það má allavega treysta því að hann læðist í gegnum neðanjarðargöng til að komast óséðir undan fólkinu sem þeir eiga tæknilega séð að vera að vinna fyrir. Ekki skrýtið, þ.s. eftir daginn í dag mundi vinnuveitandi Geirs og Katrínar sennilega segja þeim að hengja sig í næsta ljósastaur ef af þeim næðist tal.

 

Þegar Þorgerður var hér um daginn að styðja við bakið á útrýmingarherferð Ísraelsmanna fyrir hönd Íslendinga uppnefndi ég hana "Sorpgerði Fratrínu" og saumaði henni blótsyrðahettu. Hettan passar henni enn - hún og Geir eru með höndina svo djúpt á kafi í afturendanum hvort á öðru að maður sér löngutöngina gægjast upp um kokið á þeim í öðru hverju sjónvarpsviðtali. Hinsvegar er komið tími á ný uppnefni og í tilefni mótmælanna í dag þá mælist ég hér með til þess að þau Standa á Gatrín og Fleir í Görne druslist til að segja af sér, og ganga til nýrra kosninga eigi síðar en í vor.

 

Næst kveikir fólk í alþingishúsinu.

 

PS. Hafi lögreglan handleggsbrotið miðaldra mann með því að þusta að honum þar sem hann stóð að fylgjast með, þá mælist ég eindregið til þess að fólk bjóði lögreglunni upp á krepputilboðið: "Tveir fyrir Einn."Þeir eru kannski hraustir, en ég held að löggan sé áreiðanlega ekki með handleggi úr stáli.


mbl.is Mótmæli mega ekki snúast upp í andhverfu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Darwin svarar þessu.

Erfðafræðilega ástæðan fyrir því að konur fá raðfullnægingar með ríkari mönnum, hermönnum, eða s.k. "providerum" er að formæður sem hafa í gengum tíðina kiknað fyrir þannig körlum frekar en öðrum hafa verið sennilegri til að koma sínum genum áfram til afkomenda. Þetta er það sama og gerist þegar þeir eiginleikar sem gera menn ríka eða góða hermenn þeir sem gera það sennilegra að lenda á konum sem grenja lengi og vel undir þeim. Þetta er sama dæmi, en kvennahliðin er ekki jafn augljós.

 

Að sama skapi má segja að þær sem sækjast eftir fátæklingum, væsklum eða þeim sem eru sennilegir til að detta úr umferð snemma á ævinni af einhverjum orsökum eru óalgengar m.a. vegna þess að þær hafa sigtast fljótlega frá.

 

Þetta er meginástæðan fyrir þessu.


mbl.is Ríkir menn betri í rúminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Rúnar Þór Þórarinsson

Höfundur

Rúnar Þór Þórarinsson
Rúnar Þór Þórarinsson
Leikjahönnuður m.m.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Búinn að fá bita hjá öllum!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband