Átta í dag, áttatíu á næsta ári, áttahundruð 2012

Íslendingar ættu að setja eitthvert markmið. Kannski dálítið bratt í fyrirsögninni minni, en við ættum að vera metnaðarfull í þessu. Þetta yrði gríðarlegur sparnaður fyrir þjóðarbúið ef þetta kæmist á koppinn.

 

Eini gallinn væri að fyrirmyndarfyritæki eins og Shell, N1 og Olís, sem hafa hag neytenda, sanngirni og sjálfbærni þjóðarbúsins að leiðarljósi myndu fara illa út úr þessu!


mbl.is Auglýsa eftir fólki til að prófa rafbíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki eðlilegt ástand

Það hefur líka eitthvað verið bilað hér í Bandaríkjunum með svartan forseta og enginn má segja "Screw dem fuckin' hos nigga, shit!"

 

Þetta er auðvitað aðdragandi armagedón skv. Biflíunni, en hnignun og siðleysi er undanfari endurkomu antikrists. Djöfullinn! DJÖFULLINN!!

 

...þingkosningar í haust sko, júhú! Fyrirtaktækifæri til vandlætingar hinna hjartahreinu.


mbl.is Mega nú blóta og klæmast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnleg orðsending til ISG

Rót þeirrar spillingar og blindu sem við glímum við í dag er að finna í lygum, blindri trú og yfirhylmingu á málefnum miðausturlanda. Þar kjarnast allt það versta sem við tökumst á við á Íslandi svo ekki sé talað um víðar í heiminum, t.d. Bandaríkjunum þar sem ég bý sem stendur.

 

Það er ekki hægt að breyta því sem átt hefur sér stað, en fólk getur lært af reynslunni. Komdu nú fram eins og manneskja sem hægt er að líta upp til og láttu ekki blekkja þig og blekkja nefndina. Það þarf að vera algerlega ljóst að flest það sem þú munt heyra frá málsaðilum eru fals og lygar. Sigtaðu það frá og vertu til gagns - Ekki útvatnaður pólitíkus eins og svo margir halda fram, heldur karakterinn sem við þekkjum frá níunda og tíunda áratugnum áður en þú lést blindast af frægðarglingrinu. Það er fönix þarna einhversstaðar í öskunni, ég hef það á tilfinningunni...


mbl.is Boðið að stýra rannsókn SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefur bönkunum milljarða ekki almenningi?

Gylfi er að tala um að henda hundruðum milljarða króna í bankana um leið og þeir verða uppvísir að lögbroti, en almenningur sá sem brotið var á fær hundaskít frá honum og annar almenningur sem hefur tekið þungt högg vegna slæmrar hagsstjórnar fær ekki krónu? Hvernig væri að nota þessa fjármuni til að mýkja höggið sem kemur þegar verðtryggingin verður felld niður?
mbl.is Almenningur fengi reikninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmenn í sápukúlu

OK - Það er gersamlega borðliggjandi mál að alþingi er lamað hvert sem litið er. Ekkert hugrekki til að takast raunverulega á við vandann og eyða honum. Viljinn stendur til að ljúga að fólki og koma vinnu almennings síðustu áratugi í hendur þeirra fáu einstaklinga sem enduðu með bankana í höndunum eftir hrunið. Eða hvert í fjandanum fer auður heimilanna, húsin sjálf og vinnan?

 

Nei, ekki þangað heldur seld á útsöluverði til þeirra sem sitja á milljörðunum eftir hrunið. Og það á að gera með því að neyða fólk í brunaútsölu á lífi sínu.

 

Það þarf að stoppa þetta núna!


mbl.is Vandi heimila vanmetinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað með styrkina?

Eru menn nú að velta sér upp úr því að Björn Valur skuli dirfast að spyrja, á sömu stundu og Sigurður Kári þverneitar að gefa upp stóra styrkveitendur?

 

Hvernig væri að æsa sig yfir leyndinni yfir því hvaðan styrkirnir bárust og spillingunni í Sjálfstæðisflokknum?

 

Mér kæmi það hreint ekki á óvart að Sigurður Kári hafi einmitt þegið styrki frá þessu lögfræðingafyrirtæki. Leystu frá skjóðunni kútur...


mbl.is Þurfti að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugrakkur fréttamaður kúgaður

Eins og undir stjórn Bush lætur Helen Thomas nú kúga sig undir stjórn Obama. Sorglegt. Hverskonar ógnir skyldu gyðingarnir eða þrælar þeirra í trúnni, hafa beitt hana til að láta hana biðjast afsökunar á að segja sannleikann?
mbl.is 89 ára fréttaritari hættir vegna ummæla um Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðalatriðið vantar í lélega frétt

Í netútgáfu þessarar fréttar a.m.k. vantar aðalatriðið:

Úr frétt RÚV: "Þá má bankinn ekki skipta sér af viðskiptum yfirtekna fyrirtækisins við önnur fyrirtæki sem bankinn á hlut í...Loks eiga bankarnir sjálfir að hafa ítarlegt og viðvarandi eftirlit með því að skilyrðunum sé fylgt."

Minnir þetta ykkur á eitthvað viðskiptaform frá því fyrir hrun? Hvernig dettur mönnum þetta í hug? Þetta þarf að stöðva. Og þessu þurfa allir fjölmiðlar, t.d. Mogginn, að greina frá.


mbl.is Bankarnir fari að settum reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarni málsins (í alvöru)

Við erum vön því að að vera svikin með kossi, nú gefum við því langt nef og kjósum með brosi.
mbl.is Besti flokkurinn stærstur í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann þarf þá ekki að hafa áhyggjur af neinu

Ef það erfiðasta var að missa æruna, þá getur hann látið sér vel líða. Hún er löngu, löngu farin. Takk fyrir að leggja þjóðina í öreigu og gjaldþrot Magnús. Þú ert dýr.
mbl.is Mun sýna fullan samstarfsvilja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Rúnar Þór Þórarinsson

Höfundur

Rúnar Þór Þórarinsson
Rúnar Þór Þórarinsson
Leikjahönnuður m.m.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Búinn að fá bita hjá öllum!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband