Færsluflokkur: Bloggar
9.11.2009 | 13:58
Þarf í alvöru að flytja fréttir af þessu?
Faðir og börn fundust hengd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2009 | 20:23
Sama sagan frá Íslandi!
Ég sé ekki betur en að auð- og stjórnmálamenn séu mættir sprelllifandi í eigin jarðarfarir. Peningamyndararnir. Friedmanistarnir. Laissez-Faireistarnir. Hrunkóngarnir. Hinir lifandi dauðu.
Og þeir mæta hlæjandi og skipuleggja lífið eftir dauðann og það verður gott líf hannað til að komast yfir leifar þjóðarauðsins og endurtaka fantaskapinn. Zombíar sem éta heilann úr þjóðinni.
- LÍÚ/Hafró klíkan (halda kvótaverði uppi til að geta áfram leigt ekkert fyrir allt fyrir ekkert)
- Útrásarvíkingarnir
- Jón Ásgeir & fjölskylda
- Davíð og flokkurinn
- Eigendur hins flokksins
- Ójafnaðarmannaflokkurinn
- Fórnarlambaflokkurinn
- Popúlistaflokkurinn
- HHG & co.
- ...hinn síminnkandi (!) hluti þjóðarinnar sem trúir svo heitt að hann sér ekki neitt.
...hvar er Anti-Hitler þegar á þarf að halda?
Tilgangur lýðræðisins var í upphafi sá að koma í veg fyrir íslenskt samfélag í Forn-Grikklandi. Reynum að koma í veg fyrir Forn-Grikkland á Nýja-Íslandi með þessu öfluga vopni. Ekkert er upplýstri þjóð ómögulegt og ekkert er jafn ómögulegt og óupplýst þjóð sem heldur að hún sé upplýst. Hér er háð stríð án mannfalls og okkur á að nægja að jarða hugmyndafræðina og módelið sem hún ól af sér og heldur öllu í heljargreipum. Maður á ekki að vera með kampavín í jarðarför.
"Ég vakna eftir stórkostlega drauma, stíg fram úr rúminu og fæturnir lenda beint ofan í hreina sokka og pússaða skó og fötin, nýpressuð af ástsjúkri vinkonu bíða mín undir nærbuxunum hennar og þau skríða silkimjúk á útlimina og blettast ekki af heitu brasilísku lúxuskaffi sem aðdáandi minn úr næsta húsi kom með í morgun eins og venjulega með beinu flugi frá Brasilíu..."
Mætti í eigin jarðarför | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.11.2009 | 14:20
Komið þessu á DVD!
Persónulega kemst ég ekki í dagskrá Stöðvar 2 erlendis og downloada Fangavaktinni um leið og ég sé hana. Downloadaði Dagvaktinni allri og keypti hana svo á DVD og gaf hana einnig.
Þetta er ekki spurning um þjófnað heldur aðgengi. Hversu mikið mundi Stöð 2 ekki græða á þessu ef þeir hefðu t.d. möguleika á að selja hvern þátt fyrir lítið fé yfir netið út um allan heim um leið og búið væri að sýna hann? Persónulega mundi ég fremur kaupa þá þannig heldur en að vera að leita að Fangavaktinni á allskyns bittorrent síðum sem eru að maka krókinn á annarra manna vinnu með allskyns hrossakaupum.
Gera þetta aðgengilegt, það þýðir nákvæmlega ekkert að berjast við internetið. Það er eins og að stöðva vindinn.
Fangavaktinni stolið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.11.2009 | 14:14
Stærð klúðursins of mikil
AGS nær ekki utan um þetta frekar en nefndin íslenska sem við heyrum ekki múkk frá en borgum morð fjár fyrir að rannsaka hvernig morð fjár glataðist í þjófnaði aldarinnar. Reyfaraefni! Eins gott að AGS taka því alvarlega að gæta hagsmuna Íslendinga - LOL.
Birtingu skýrslu um Ísland frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2009 | 14:19
Óþarfi að lesa of mikið í þetta
Miðað við umfjöllunina hefði umferðin átt að vera þreföld í það minnsta
Hvernig væri að gefa öllum fyrirtækjum sem eru við það að fara á hausinn svona gott fréttastæði? Þeir færu þá með stæl.
Allt brjálað að gera hjá McDonald's | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2009 | 16:18
Frábært mál að skoða
Illyfirstíganlega vandamál kæmu reyndar í veg fyrir framkvæmdina, en þó er aldrei að vita hvað kæmi út úr því að skoða þetta af alvöru. Norrænu þjóðirnar eru alveg ótrúlega líkar að lundarfari, auðvitað hver með sínum einkennum núorðið, dálítið frábrugðnum tungumálum og herþjónustumismunur, en þetta er ekkert óyfirstíganlegt. Hér eru nokkrar leiðbeinandi tillögur:
- Nota bandarískt módel - Hafa einn sameiginlegan stjórnstað svipað og Washington DC.
- Ekki undir danskri drottningu heldur gera þetta af alvöru með sameiginlegu lögþingi og róterandi framkvæmdavaldi.
- Þetta væri formlegra samband sjálfstæðra þjóða (aftur svipað og fylki Bandaríkjanna).
- ...þetta gæti verið andskoti langur listi, hef ekki tíma til að standa í þessum skrifum núna í stuttu máli held ég að þetta væri mikið rokk! Og ennfremur á þessu engir óyfirstíganlegir gallar.
Kostir þess að fara út í þetta væru gríðarlegir í menningarlegu- efnahagslegu- og öryggislegu tilliti.
Vill stofna norrænt ríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2009 | 06:03
Sama niðurstaða hjá þessari ríkisstjórn og hinni gömlu.
Nú hefur þessi ríkisstjórn eins og hin síðasta brugðið á sama leik með Icesave.
Mikið var þessum reikningum með endemum klúðrað, meðferð innistæðna og hegðun Breta gagnvart bankanum. Að krefjast 95% lausafjár í útibúinu fyrir Icesave hefði aldrei verið farið fram á við nokkurn annan banka í heiminum.
Ekki veit ég hvað VG og Samfylkingin eru að spá, en ekki er það frábrugðið því sem fyrri ríkisstjórn gerði og hvað varð aftur um þá stjórn?
Enginn á þingi ræður við að stýra landinu, nú hefur hver einasti flokkur sýnt sitt innra eðli einn af öðrum. Það er ekki annað til ráðs en að bíta í skjaldarrendur og taka slaginn. Ekki verður þetta samþykkt ef Mogginn er á annað borð að fara rétt með, sem er jú alls ekki ábyggilegt. Einkasorprit æðstaprests hrunsins og skömm Íslands. Veit varla hvern andskotann ég er að blogga hér lengur.
Icesave-fyrirvörum breytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2009 | 12:51
Beinakirkjugarður
Kaupþing frysti Samson-innstæðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2009 | 19:30
Ég vil ekki sjá Karl Lagerfeld...
Enginn vill sjá þrýstnar konur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2009 | 15:28
Þvílík skilaboð að senda út í samfélagið
Ef þú ert nógu rosalega útúrdópaður, þá kemstu upp með að ljúga hverju sem er upp á hvern sem er. Ef ákæran klikkar, þá sleppurðu.
Munið það - Það er hægt að vísa í þennan dóm í framtíðinni. Allt verður jú að vera sanngjarnt. Og ef Gunna slapp, þá verður Sigga að sleppa og Óli og Gummi líka.
Það skiptir semsagt ekki máli hvað þú gerir, heldur hvað þú hugsar. Hvaða jólasveinar dæmdu þetta eiginlega?
Geðsjúklingar sem myrða eða brjóta á fólki vegna einhverra skáldaðra ástæðna eiga semsé rétt á því að sleppa því þeir héldu að þeir væru að gera eitthvað annað?
Brandari dagsins
Sýknuð af ákæru fyrir rangar sakargiftir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Rúnar Þór Þórarinsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- runarogmaria
- toti1940
- trassinn
- thoragudmanns
- disdis
- jenfo
- hlynurh
- eirag
- lehamzdr
- sibba
- hlini
- kreppan
- maggib
- dofri
- omarragnarsson
- haukurn
- larahanna
- gmaria
- susannasvava
- godaholl
- skodun
- thoragud
- gussi
- robertb
- nanna
- bjarnihardar
- killjoker
- skarfur
- jonb
- jonhalldor
- joik7
- brylli
- gullvagninn
- manisvans
- gullib58
- holmdish
- haugur
- dadihrafnkelsson
- gorgeir
- einaroddur
- ninaos
- raggiraf
- hlf
- svartur
- joihallgrimss
- hoskars
- haddih
- brell
- juliusbearsson
- jgfreemaninternational
- maeglika
- olii
- sumri
- thj41
- graenaloppan
- vilhjalmurarnason
- kikka
- gummi-p
- kvistur
- rosalinda
- siggi-hrellir
- gudborg
- smg
- redaxe
- snjolfur
- reykur
- birgitta
- gattin
- doggpals
- emilkr
- tungirtankar
- ea
- gretarogoskar
- hreinn23
- gbo
- halldojo
- veravakandi
- hildurhelgas
- drum
- daliaa
- fun
- jas
- jonfinnbogason
- jhe
- krilli
- grjonaldo
- snorrima
- sveinnhj
- tara
- vallidjofull
- oddikennari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar