Snilldarblanda

Að blanda banvænum efnum út í kókaín og önnur fíkniefni - Er það ekki árangursrík baráttuaðferð gegn smyglhringjum. Gera út af við neytendurna með því að blanda banvænum skömmtum við hinn almenna markað. Það er ekki eins og neytendurnir viti hvað þeir eru að setja ofan í sig í raun og veru. Það vantar alveg heilbrigðisstimpil matvælaeftirlitsins á þetta!
mbl.is Samdráttur í framboði á kókaíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

"Að blanda banvænum efnum út í kókaín og önnur fíkniefni - Er það ekki árangursrík baráttuaðferð gegn smyglhringjum."

Ertu klikkaður?

Rétta leiðin er að dómstóll götunnar taki þessa andskotans hunda sem standa fyrir innflutningi og örbirgð barnanna okkar og kenni þeim ærlega lexíu.

Hefðbundið dómskerfi ræður ekkert við þetta og ekki löggan heldur.

Björn Birgisson, 12.5.2009 kl. 18:56

2 Smámynd: Davíð Þór Þorsteinsson

Þetta fíkniefnastríð er til skammar. Sorglegt bara.

Davíð Þór Þorsteinsson, 12.5.2009 kl. 21:49

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Tilaga þín Rúnar er verulega ósmekkleg sem og tilaga Björns. Við eigum að reyna eftir bestu getu að hjálpa því fólki sem hefur leiðst út í fíkniefni. Í lýðræðisþjóðfélögum höfum við réttarkerfi þar sem menn eru saklausir uns sekt er sönnuð. Hefur það farið framhjá þér Björn?

Hilmar Gunnlaugsson, 13.5.2009 kl. 02:50

4 Smámynd: Matthildur Jóhannsdóttir

Ertu nasisti? Er það fyrsta sem ég hugsa. Sérstaklega þegar svona einfeldingsleg úrræði eru sett framm.

Kveðja M

Ps. þú mátt dunda þér við að leiðrétta stafsetninguna. ha..ha..ha

Matthildur Jóhannsdóttir, 13.5.2009 kl. 10:49

5 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Haha!! Þið eruð alveg gersamlega ónæm fyrir kaldhæðni - Meiri kjánarnir!

Sýnir hverskonar öfgum og vitleysu fólk býst við í þessari umræðu - Hverskonar plani þessi umræða er á. Ég fæ lang-vitlausustu viðbrögðin við því sem ég skrifa um fíkniefni og eftirliti með þeim, hvort sem ég er að skrifa í alvöru, gera grín eða vera með kaldhæðni.

Rúnar Þór Þórarinsson, 25.5.2009 kl. 15:10

6 Smámynd: Björn Birgisson

Gott að þú skemmtir þér vel Rúnar minn!

Björn Birgisson, 25.5.2009 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rúnar Þór Þórarinsson

Höfundur

Rúnar Þór Þórarinsson
Rúnar Þór Þórarinsson
Leikjahönnuður m.m.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Búinn að fá bita hjá öllum!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband